Ferill 616. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1200  —  616. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum.

Frá meiri hluta félagsmálanefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Hermann Sæmundsson frá félagsmálaráðuneyti og Þórð Skúlason frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
    Með frumvarpinu er lagt til að hluta af árlegu framlagi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til Lánasjóðs sveitarfélaga á árunum 2002–2005 verði varið til að styrkja stofnframkvæmdir við grunnskólabyggingar þannig að unnt verði að ljúka átaki til einsetningar grunnskólans. Frumvarpið felur í sér aukin fjárframlög til verkefnisins frá því sem áður var ákveðið en jafnframt er tekið tillit til heimildar menntamálaráðherra til að fresta lokum átaksins um tvö ár í einstökum sveitarfélögum.
    Nefndin fjallaði sérstaklega um stofnframkvæmdir við grunnskóla sem fjármagnaðar eru samkvæmt samningum um einkaframkvæmd. Telur meiri hlutinn ekki ástæðu til að lögbinda ákveðna fjárhæð til slíkra framkvæmda og leggur því til breytingu þess efnis. Meiri hlutinn telur þó rétt að heimilt verði í reglugerð að ákveða hámarksframlag til slíkra verkefna á ári hverju.
    Meiri hlutinn mælir með að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Við 1. gr.
     a.      Í stað 2. málsl. 2. efnismgr. komi tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Heimilt er að veita styrki til stofnframkvæmda við grunnskóla sem fjármagnaðar eru samkvæmt samningum um einkaframkvæmd, hvort sem er á grundvelli eignarleigu- eða rekstrarleigusamnings, enda sé um að ræða framkvæmdir sem falla undir ákvæði 1. mgr. og uppfylla að öðru leyti skilyrði til úthlutunar samkvæmt þessari grein. Í reglugerð er þó heimilt að ákveða árlegt hámarksframlag sem rennur til sveitarfélags vegna samnings um einkaframkvæmd.
     b.      3. efnismgr. orðist svo:
             Heimilt er að færa til fjármuni skv. 1. mgr. sem sveitarfélögin nýta ekki á viðkomandi ári á milli ára innan tímabilsins.

    Guðrún Ögmundsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 12. apríl 2002.



Arnbjörg Sveinsdóttir,


form., frsm.


Magnús Stefánsson.


Drífa Hjartardóttir.



Pétur H. Blöndal.


Jónína Bjartmarz.


Kristján Pálsson.



Ásta R. Jóhannesdóttir,


með fyrirvara.